Author Archives: PGA á Íslandi
Golfskóla PGA útskriftarnema 3. árgangs á Spáni lokið
Eitt af útskriftarverkefnum golfkennaranema í Golfskóla PGA á Íslandi er að skipuleggja og framkvæma golfskóla á Spáni fyrir almenna kylfinga. Þetta var í þriðja sinn sem nemendur Golfkennaraskólans tóku að sér þetta verkefni, en í þessum árgangi voru eftirtaldir nemendur: … Continue reading
Myndir frá golfskóla PGA á Spáni
Útskriftarnemar PGA á Íslandi stóðu fyrir glæsilegum golfskóla á Costa Ballena 24. til 31. mars. Myndi segja meira en þúsund orð, hægt er að skoða myndir frá golfskólanum hér. Skýrslu um ferðina skrifaða af Úlfari Jónssyni má lesa hér
Golfklúbbur Sauðárkróks auglýsir eftir golfkennara til starfa sumarið 2012
Golfklúbbur Sauðárkróks auglýsir eftir golfkennara til starfa sumarið 2012. Golfklúbbur Sauðárkróks hefur lengi haldið úti öflugu barna-og unglingastarfi og s.l. sumar sendi klúbburinn m.a. sveitir bæði í stráka- og stúlknaflokki í sveitakeppnir GSÍ. Tímabilið sem um ræðir er júní til … Continue reading
Auglýst eftir golfkennara á landsbyggðina
Golfklúbburinn Ós, Blönduósi og Golfklúbbur Skagastrandar auglýsa eftir golfkennara sumarið 2012. Mikill áhugi er hjá þessum klúbbum að efla barna-og unglingastarf og fá fleiri „fullorðna“ til að stunda golfíþróttina á svæðinu. Kennslan færi fram á báðum stöðum. Við leitum að … Continue reading
Stjórn PGA skiptir með sér verkum
Stjórn PGA hélt sinn fyrsta fund 3. febrúar. Fyrsta verk stjórnarinnar var að skipta með sér verkum og var Sigurpáll Geir Sveinsson endurkjörinn formaður þriðja árið í röð. Að öðru leiti er skipting stjórnar með eftirfarandi hætti: Jón Þorsteinn Hjartason, … Continue reading
Punktar af aðalfundi
Aðalfundur PGA á Íslandi var haldinn 28 febrúar síðastliðinn. Mikil gróska er í samtökunum sem telur nú 55 PGA sérfræðinga, 36 eru viðurkenndir PGA kennarar, sjö eru með stöðuna spilandi atvinnumaður og 12 eru PGA kennaranemar. Stjórn PGA var endurkjörinn … Continue reading
Aðalfundur PGA fyrir starfsárið 2011
Aðalfundur PGA verður haldinn laugardainn 21. janúar í Hraunkoti. Mæting er kl. 11.00. , þá mun Agnar Már að halda fyrirlestur um það sem helst brann á mönnum á aðalfundi PGA‘s of Europe . Eftir kynninguna verður léttur hádegisverður í … Continue reading
Laust starf hjá ProGolf
ProGolf auglýsir eftir PGA menntuðum kennara til að sinna barna og unglingastarfi GR. Sjá nánar hér -> Laust starf til umsóknar
PGA á Íslandi setur upp golfskóla á Spáni
PGA setur upp golfskóla á Spáni, mars 2012 -Stórkostlegt tækifæri fyrir hinn almenna kylfing að eyða sex dögum með mörgum af okkar bestu kylfingum- Golfskólinn er hugsaður bæði fyrir nýbyrjendur sem og þá sem lengra eru komnir. Það verða 4 … Continue reading
Landslið atvinnumanna tekur þátt í Evrópukeppni PGA
Landslið Íslands skipað atvinnumönnum í golfi hefur leik í dag í Evrópukeppni landsliða sem haldin er í Portúgal. Keppnin fer fram á Vale do Lobo golfvellinum, hún er haldin af PGA‘s of Europe og eru aðalstyrktaraðilarnir Ryder Cup og … Continue reading







