Mikið í gangi hjá spilandi PGA atvinnumönnum

Tinna, Ólafur Már, Þórður Rafn og Birgir Leifur í eldlínunni

Tinna spilaði lauk sínu fyrsta atvinnumannamóti í dag með glæsilega frammistöðu, þar sem hún endaði í i sjötta sæti á Cactus Tour. Tinna spilaði á 76-71-71 = 218 höggum og hlaut í verðlaun USD 750,-.

Ólafur Már Sigurðsson er í glæsilegri stöðu fyrir síðasta hringinn á fyrsta stigi úrtökumóts Evróputúrsins. Hann er í 21 sæti en 22 efstu kylfingarnir komast áfram á annað stig úrtökumótsins. Ólafur Már spilaði á 69 höggum í dag eða á þremur höggum undir pari og er samtals á tveim höggum undir pari.

Þórður Rafn Gissurarson tekur þátt í sama móti og Ólafur og hefur ekki alveg náð sér á strik. Fyrir loka hringinn er hann á 13 höggum yfir pari og í 74. Sæti.

Þá er Birgir Leifur Hafþórsson að spila glæsilega á Evrópu túrnum, hann spilaði í dag fyrsta hringinn á 69 höggum og er í sjötta sæti.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Tveir PGA meðlimir reyna fyrir sér á Evróputúrnum

Þeir Ólafur Már Sigurðsson og Þórður Rafn Gissurarson reyna nú fyrir sér á fyrsta stigi úrtökumóts Evróputúrsins á Fleesensee vellinum í Þýskalandi.

Ólafur Már er í 38. sæti eftir tvo hringi, hann spilaði fyrri hringinn á parinu eða 72 höggum og þann seinni á einu yfir pari eða 73 höggum. Þórður rafn er í 79. sæti en hann spilaði báða hringina á 76 höggum og er því samtals á 8 höggum yfir parinu.

Af 92 kylfingum munu 22 komast áfram á annað stig úrtökumótssins sem spilað verður á Spáni.

Fylgjast má með stöðunni á mótinu hér

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Tinna byrjar vel sem atvinnumaður

Tinna Jóhannsdóttir sem nú spilar sitt fyrsta arvinnumót byrjar vel. Í gær spilaði hún á 76 höggum og bætti um betur í dag þar sem hún spilaði á 71 höggi.  Með þeim hætti vann hún sig upp úr fjórtánda sæti upp í það sjöunda. Lokahringurinn er spilaður á morgun en stöðuna má sjá hér að neðan.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Úlfar Jónsson PGA meistarinn 2011

Vann Sigurpál Geir Sveinsson í úrslitakeppni sem haldin var samhliða Heklu Bikarnum

Sigurpáll og Úlfar

Í dag var spilaður fyrri dagur Hótel Heklu bikarsins á Hellu, spilaður var einn einliðaleikur og þrír betri boltaleikir og er staðan eftir fyrri daginn 3-1 yngra liðinu í vil.

Einliðaleikurinn fór 1-0 fyrir eldra liðinu en þar vann Úlfar Jónsson dramatískan sigur á Sigurpáli Geir Sveinssyni á síðustu holunni. Að sögn Sigurpáls var um hörku keppni að ræða, “ef ég missti einbeitinguna í eina sekúndu þá refsaði Úlfar mér, hann spilaði nánast hnökralaust golf fékk einn “flyer” en að öðru leiti var unaður að spila með karlinum. Í dag var hann einfaldlega betri en ég”, en Úlfar setti niður 6 metra pútt á 18 holunni fyrir fugli og landaði þannig sigrinum. Einliðaleikurinn var jafnframt bráðabani milli Úlfars og Sigurpáls um PGA meistaratitilinn 2011 en þeir voru efstir og jafnir í þeirri keppni eftir fjögur mót sumarsins.

Að öðru leiti voru úrslit sem hér segir:

Einar Lyng Hjaltason og Ingi Rúnar Gíslason unnu þá Ólaf Hrein Jóhannesson og Magnús Birgisson 2-1

Heiðar Davíð Bragason og Björgvin Sigurbergsson unnu þá Jón Þorstein Hjartason og Árna Pál Hansson 6-4

Nökkvi Gunnarsson og Jóhann Hjaltason unnu þá Hörð Hinrik Arnarsson og Ingiberg Jóhannsson 6-4.

Keppninni verður fram haldið á morgun en þá verður spilað Texas Scramble í Þórlákshöfn.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Hótel Heklu bikarinn 2011

PGA mót með Ryder fyrirkomulagi

George Duncan (hægri), fyrirliði Breta, fær afhentan Ryder bikarinn af viðskiptajöfrinum Samuel Ryder árið 1929. (Getty Images)

Hótel Heklu bikarinn er haldinn í fyrsta sinn af PGA á Íslandi en keppnin er með Ryder sniði og verður haldin föstudaginn 16. september og laugardaginn 17. september.  Fyrri daginn verður keppt í holukeppni með betri bolta á Hellu,  og seinni daginn verður keppnin færð yfir til Þorlákshafnar og þar verður höggleikur með texas scramble fyrirkomulagi.

Segja má að ákveðin kynslóðarskipti hafi orðið hjá PGA á Íslandi þegar ný stjórn var kjörin 2009 með Sigurpál Geir Sveinsson sem formann og verður liðskipan í þeim andanum því skipt verður í eldra lið og yngra lið.

Yngra liðið skipar:

  • Björgvin Sigurbergsson
  • Einar Lyng Hjaltason
    Heiðar Davíð Bragason
  • Ingi Rúnar Gíslason – Liðstjóri
  • Jóhann Hjaltason
  • Nökkvi Gunnarsson
  • Sigurpáll Geir Sveinsson

Eldra liðið skipar:

  • Árni Páll Hansson
  • Hörður Hinrik Arnarson
  • Ingibergur Jóhansson
  • Jón Þorsteinn Hjartarson
  • Magnús Birgisson – Liðstjóri
  • Ólafur Hreinn Jóhannesson
  • Úlfar Jónsson

Vodafone er sérstakur styrktaraðili mótsins og Hótel Hekla hefur gefið forlátan bikar sem keppt er um ásamt því að hýsa keppendur á meðan móti stendur.

Að loknu móti verður árshátíð PGA haldin á hótelinu þar sem veitt verða verðlaun fyrir afrek ársins ásamt því að PGA meistarinn 2011 verður krýndur.

Þeir Úlfar Jónsson og Sigurpáll Geirsson eru efstir og jafnir í PGA meistaramótinu eftir fjögur mót ársins og  munu þeir spila bráðabana áður en keppni hefst til að skera úr um það hvor þeirra verður krýndur PGA meistari.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Tinna Jóhannsdóttir fer í atvinnumennskuna

Stefnan sett á Evróputúrinn

Stjórn PGA á Íslandi samþykkti umsókn Tinnu Jóhannsdóttur um inngöngu í félagið sem spilandi atvinnumaður. Tinna sem var efst íslenskra kvenna á áhugaheimslista R&A söðlar því um og ætlar að spreyta sig á meðal þeirra bestu.

Tinna stefnir á að taka þátt í Cactus Tour sem er alfarið spilaður á Phoenix svæðinu í bandaríkjunum en Tinna er með aðstöðu til æfinga í háskólanum sem hún stundaði nám við í San Francisco.  Keppnin  er hugsað sem undanfari fyrir kvenkylfinga sem ætla að reyna fyrir sér á LPGA.  Tinna stefnir á að keppa á sínu fyrsta móti sem atvinnumaður á Cactus túrnum þann 19. September næstkomandi . Það mót verður haldið á Wigwam vellinum og stefnir  Tinna á að spila þrjú til fjögur mót til viðbótar á þeim túr sem endar um miðjan nóvember.

Í framhaldinu er stefnan svo sett á úrtökumótið fyrir Evrópu túrinn, en fyrsta stigið byrjar 8 janúar á La Manga golfvellinum í Murcia Spáni.

Að sögn Tinnu er hún gríðarlega spennt fyrir framhaldinu, hún hefur fengið mikinn stuðning bæði hér heima sem og erlendis og æfir við topp aðstæður þannig að framtíðin er björt hjá þessum efnilega kylfingi.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Tilkynning vegna golfskóla útskriftarnema PGA

Þar sem þátttaka var ekki næg í golfskóla PGA núna í haust var ákveðið að fresta honum þangað til í mars á næsta ári. Þeir sem þegar hafa greitt  staðfestingargjöld fá þau endurgreidd frá Heimsferðum.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

PGA ProAm 2011

PGA Pro/Am mótið fyrir árið 2011 verður haldið hjá Keili fimmtudaginn 23. júní. Byrjað verður á léttu morgunverðarhlaðborði kl. 8.00 og ræst verður út af öllum teigum kl. 9.00.

Hvert holl hefur á að skipa einum PGA meðlimi sem jafnframt er liðsstjóri ásamt þremur öðrum aðilum. Karlar spila af gulum teigum og konur af rauðum. PGA meðlimurinn spilar út sínum bolta en hinir þrír spila betri bolta, Texas Scramble. Með þeim hætti getur PGA aðilinn aðstoðað sína menn við leikskipulag ásamt því að gefa viðkomandi aðilum endurgjöf að leik loknum eða í leik ef viðkomandi óskar. Að leik loknum er boðið upp á léttar veitingar ásamt verðlaunaafhendingu. Glæsileg verðlaun verða í boði fyrir efstu lið í liðakeppninni.

Verð pr. Keppenda er kr. 16.000,- innifalið er:

  • Morgunverðarhlaðborð
  • 4 tíma spil með PGA Pro
  • Farið yfir leikskipulag
  • Endurgjöf að leik loknum eða í leik ef viðkomandi óskar.
  • Léttar veitingar að leik loknum
  • Glæsileg verðlaun í boði

Mótið er haldið í tengslum við Íslensku mótaröðina í golfi og er haldið í samstarfi við GSÍ og GK.

Skráning fer fram á netfanginu skraning@pga.is

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Sigmundur Einar Másson, nýr meðlimur í PGA á Íslandi

Sigmundur Einar Másson, kylfingur úr GKG, hefur skilaði inn áhugamannaskírteini sínu og var samþykktur af stjórn PGA á Íslandi þann 19. maí 2011 sem meðlimur í félaginu með stöðuna “atvinnu kylfingur”. Sigmundur hefur átt farsælan feril sem áhugamaður hér á íslandi sem og erlendis þar sem hann meðal annars sigraði á tveimur mótum í háskólagolfinu í Bandaríkjunum.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Félagsfundur 20. mars 2011

Stjórn PGA heldur félagsfund sunnudaginn 20. mars kl. 14.00-16.00

Fundurinn fer fram í Hraunkoti.

Efni fundarins er:

Kynning á matskerfi PGA sem mun koma til með að flokka meðlimi eftir því hversu duglegir þeir eru að taka þátt í starfi PGA og að endurmennta sig. Þetta kerfi byggir á punktasöfnun meðlima og mun mæting á fund sem þennan gefa punkta.

Umsjón: Matsnefnd PGA á Íslandi

Kynning á www.draumagolf.is sem PGA á Íslandi hefur fengið til umráða í a.m.k. 1 ár. Þessi vefur er gott verkfæri golfkennara sem allir meðlimir ættu að geta nýtt sér.

Umsjón: Jón Karlsson

Önnur mál. Ef menn hafa eitthvað sem þeir vilja koma á framfæri er um að gera að nýta sér þennan fund til þess.

Stjórn PGA á Íslandi vonast til að sjá sem flesta á fundinum því við erum að vona að þessi verkefni hjálpi okkur að þjappa félaginu saman og gera það enn stærra og sterkara, jafnt innávið sem útávið.

F.h. stjórnar PGA á Íslandi

Sigurpáll Sveinsson
formaður

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3