Vilt þú taka þátt í spennandi starfi Golfklúbbs Akureyrar?
Laus er til umsóknar staða golfkennara Golfklúbbs Akureyrar (GA). Golfkennari gegnir lykilhlutverki í starfi klúbbsins og hefur yfirumsjón með skipulagi og þjálfun kylfinga í klúbbnum. Golfkennari myndar framkvæmdastjórn GA ásamt framkvæmdastjóra og vallarstjóra.
Jaðarsvöllur, golfvöllur GA, er meðal fremstu 18 holu golfvalla landsins. Þá er hafin uppbygging nýs æfingasvæðis og par 3 vallar sem mun gjörbreyta allri æfingaaðstöðu. Stutta spilið er æft á fyrsta flokks æfingaflötum. Á veturna æfa félagar í frábærri aðstöðu í íþróttahöllinni á Akureyri, þar sem m.a. er boðið upp á æfingar og kennslu í Trackman og spil í fyrsta flokks golfhermi. Félagar eru um 760, þar af eru börn og unglingar ríflega 160.
Nánari upplýsingar um GA má finna á www.gagolf.is og www.arcticopen.is.
Starfssvið:
- Stefnumótun og markmiðasetning varðandi golfþjálfun
- Ábyrgð á þjónustu við almenna kylfinga á sviði þjálfunar
- Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar barna og unglinga
- Ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar afrekskylfinga
- Upplýsingagjöf og samstarf við stjórn, starfsfólk og nefndir klúbbsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Viðurkennt PGA golfkennaranám
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Geta til að tjá sig í ræðu og riti
- Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjanda og kynningarbréf þar sem ástæða umsóknar er tilgreind.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Jensson, framkvæmdastjóri GA, í síma 857 7009 og í netfanginu agust@gagolf.is.
Umsóknarfrestur er til 26. nóvember.