Aðalfundur PGA á Íslandi, fór fram s.l. laugardag 22. nóvember í golfskála GKG.
Afreksþjálfari GKG, Derrick John Moore, var útnefndur PGA kennari ársins fyrir árið 2016. PGA á Íslandi stóð fyrir kosningu meðal félagsmanna, þar sem Derrick var einn af fimm tilnefndum kennurum. Þetta er í þriðja sinn sem Derrick hlýtur þennan mikla heiður, en PGA samtökin útnefndu fyrst kennara ársins árið 2007.
Við óskum Derrick innilega til hamingju með þessa miklu viðurkenningu.
Hér má sjá lista yfir þá kennara sem hlotið hafa viðurkenninguna PGA kennari ársins.