PGA á Íslandi óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan starfsmann í 50% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
- Umsjón og utanumhald verkefna tengdum PGA skólanum
- Umsjón með tekjuöflun og samskipti við samstarfsaðila PGA
- Ýmis konar skrifstofu- og skipulagsverkefni
- Þátttaka í þróun og eftirfylgni verkefna á vegum félagsins
- Samskipti og þjónusta við félagsmenn
Hæfniskröfur:
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði í starfi
- Góð þekking á golfíþróttinni og golfhreyfingunni skilyrði
- PGA menntun er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Við leitum að jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa í lifandi og faglegu umhverfi innan golfhreyfingarinnar.
Áhugasamir eru beðnir um að senda umsókn og ferilskrá á pga@pga.is fyrir 29. mars næstkomandi.