GKG auglýsir eftir verkstjóra fyrir golfleikjanámskeiðin í sumar

gkg_golfnamskeidGKG leitar að verkstjóra á vikuleg golfleikjanámskeið í sumar. Fyrsta námskeið hefst 8. júní og því seinasta lýkur 31. júlí. Alls 7 vikur auk einnar viku frí þegar Meistaramót klúbbsins fer fram (29.6-3.7). Gert er ráð fyrir að verkstjóri hefji störf vikuna áður til að undirbúa námskeiðið og þjálfa leiðbeinendur. Leiðbeinendur koma úr röðum keppniskylfinga GGKG og eru á aldrinum 15-22 ára. Verkstjóri skipuleggur námskeiðin í samráði við íþróttastjóra og hefur umsjón með leiðbeinendunum, auk annara starfa sem lúta að námskeiðunum. Vinnutími er frá kl. 8-16 virka daga.

Sjá lýsingu á námskeiðunum

Námskeiðin eru blanda af hreyfingu (leikjum), SNAG og „alvöru“ golfi. Námskeiðin hafa verið mjög vinsæl undanfarin ár og hafa 400-500 börn á aldrinum 5-12 ára sótt námskeiðin á hverju sumri. Einungis samviskusamir og metnaðarfullir einstaklingar koma til greina í þetta starf.

Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á ulfar@gkg.is

Tögg :

Deila frétt :

Nýlegar fréttir

Let's Join Wih Us

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis pulvinar dapibus.