Laus er til umsóknar staða yfirgolfkennara í Básum.
Yfirgolfkennari Bása mun gegna því hlutverki að sinna golfkennslu fyrir félagsmenn í Golfklúbbi Reykjavíkur ásamt því að halda úti kennslu fyrir aðra kylfinga. Básar er golfæfingasvæði í Grafarholti og þar eru aðstæður til golfæfinga eins og þær gerast bestar.
Golfklúbbur Reykjavíkur er með tæplega þrjú þúsund félagsmenn. Í Básum er að finna eina fullkomnustu golfkennsluaðstöðu landsins, þar er hægt að æfa utandyra allan ársins hring á flóðlýstu æfingasvæði. Þar er einnig að finna upphitað einkakennslurými, þar sem hægt að hafa opnar dyr út á æfingasvæðið.
Nánar má lesa um Bása á netfanginu www.basar.is
Starfssvið:
- Stefnumótun og markmiðasetning varðandi golfkennslu fyrir félagsmenn GR
- Ábyrgð á þjónustu við almenna kylfinga á sviði þjálfunar
- Upplýsingagjöf og samstarf við framkvæmdastjóra og íþróttastjóra GR
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Viðurkennt PGA golfkennaranám
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Þekking á Flight Scope er mikill kostur
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Geta til að tjá sig í ræðu og riti
- Jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjanda og kynningarbréf þar sem ástæða umsóknar er tilgreind.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingi Rúnar Gíslason Íþróttastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur á póstfanginu ingi@grgolf.is.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 2016 og berast á póstfangið ingi@grgolf.is
Allar umsóknir er farið með sem trúnaðarmál