Golfsamtök Fatlaðra á Íslandi (GSFÍ) auglýsa eftir golfkennurum/golfkennaranemum til að kenna og þjálfa fatlaða golfiðkendur. Æfingar eru einu sinni í viku í Hraunkoti kl. 20:00 á mánudögum. Við leitum að aðila eða aðilum sem hafa frumkvæði og treysta sér til að skipuleggja og sjá um æfingarnar en æfingatímabilið er frá 1. mars til 31. október. Greitt er fyrir kennsluna skv. samkomulagi.
Frekari upplýsingar veitir Karl Ómar Karlsson á kalli@keilir.is eða í síma 863-1008