Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar PGA á Íslandi var Hlynur Geir Hjartarson valinn nýr formaður samtakanna. Hann tekur við af Sigurpáli Geir Sveinssyni sem gegnt hefur embættinu frá árinu 2009.
Hlynur Geir segist taka við góðu búi af forvera sínum. Samtökin hafa eflst jafnt og þétt í formannstíð Sigurpáls og standa vel. Það leiðir af sér að núna er tækifæri til sóknar. Þau atriði sem ég hef áhuga á að einbeita mér að er annars vegar að efla félagið innan í frá, að fá samtakamátt meðal félagsmanna sem nú eru um 70. Út á við hef ég metnað fyrir því að ná þéttu samstarfi við golfklúbbana á Íslandi varðandi útbreiðslu á Íþróttinni. Það er gríðarlega mikilvægt að snúa við þeirri þróun sem við sáum á síðasta ári þegar fækkun var á þátttökundum innan golfhreyfingarinnar. Í þeim þætti er mér það mest hugleikið að efla barna og unglingastarfið ásamt því að efla kennslu á landsbyggðinni. Lykilatriðið er að ná forgjög golfara niður fyrir 24, allar rannsóknir sem gerðar hafa verið styðja það að þeim punkti virðist sem kylfingar hafi náð þeim tökum á íþróttinni að litlar sem engar líkur eru á að þeir hætti í golfi. Það er frábær hópur sem myndar stjórn PGA og hlakkar mig mikið til að takast á við það að efla golfíþróttina á íslandi með þeim einstaklingum, öðrum félagsmönnum PGA, golfklúbbunum á íslandi og síðast en ekki síst GSÍ sem við höfum átt gott samstarf við í gegnum árin.
Hlynur Geir byrjaði í golfi árið 1996 eftir farsælan feril í knattspyrnu þar sem hann var meðal annars íslandsmeistari með KR í 3. og 2. flokki. Undir handleiðslu Magnúsar Birgissonar náði hann fljótt tökum á golfíþróttinni og vann sinn fyrsta sigur á eftstu mótaröðinni árið 2005. Hlynur varð stigameistari íslands 2008, Íslandsmeistari í holukeppni 2008, íslandsmeistari í sveitakeppninni 2008 og stigameistari árin 2010 og 2012. Hlynur er í dag framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss ásamt því að sinna formennsku hjá PGA samtökunum.