Eftirfarandi tillaga að lagabreytingu hefur verið lögð fram fyrir aðalfund félagsins þann 2. febrúar næstkomandi:
Núverandi grein:
6. gr. Stjórn félagsins
Stjórn félagsins skipa fimm félagsmenn. Stjórnin skal kosin á aðalfundi. Afl atkvæða ræður úrslitum á fundinum. Kjörgengi til stjórnarsetu hafa þeir meðlimir sem uppfylla skilyrði A – B – C og D liði 3. greinar. Leitast skal þó við að skipa golfkennara með viðurkennd kennsluréttindi í stjórn félagsins. Ekki geta fleiri en tveir aðilar með aukaaðild verið í stjórn hverju sinni. Stjórn félagsins velur sér formann og skiptir með sér verkum.
Breitt 6.gr
Stjórn félagsins skipa fimm aðalmenn og tveir varamenn . Stjórnin skal kosin á aðalfundi. Afl atkvæða ræður úrslitum á fundinum. Kjörgengi til stjórnarsetu hafa þeir meðlimir sem uppfylla skilyrði A – B – C og D liði 3. greinar. Leitast skal þó við að skipa golfkennara með viðurkennd kennsluréttindi í stjórn félagsins. Ekki geta fleiri en tveir aðilar með aukaaðild verið í stjórn hverju sinni. Stjórn félagsins velur sér formann og skiptir með sér verkum.