Haustið 2022 hófu 50. manns nám við golfkennaraskóla PGA og eftir 3 ára nám þá útskrifaði skólinn 42. nýja PGA golfkennara í gær, 17. júní. Útskriftin fór fram í veislusal Golfklúbbs Reykjavíkur á Korpúlfstöðum og gekk eins og í sögu.

Athöfnin byrjaði á glæsilegri ræðu Huldu Bjarnadóttur, forseta Golfsambands Íslands, (sjá í skjali hér. að neðan). Útskriftin fór svo fram í kjölfarið og þar fengu útskriftarnemarnir prófskírteinið ásamt útskriftargjöf frá PGA.

Að því loknu sögðu Hrafnhildur Guðjónsdóttir og Birkir Þór Baldursson nokkur skemmtilega frá náminu. Björn Kristinn Björnsson, formaður PGA á Íslandi, sagði nokkur orð um mikilvægi skólans og hlutverk PGA í að mennta og endurmennta golfkennara. Hann þakkaði GSÍ fyrir gott samstarf, Arnari Má og skólanefndinni fyrir þeirra vinnu og Golfklúbbi Reykjavíkur, Golfklúbbnum Keili, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Háskóla Reykjavíku og Golfsögu fyrir þeirra samstarf og gera okkur kleift að gera þennan skóla eins glæsilegann og kostur var.

Arnar Már, skólastjóri, lokaði svo athöfninu með skemmtilegri ræðu þar sem hann fór aðeins yfir skólann og mikilvægi hans.


Fleiri myndir munu koma seinna í dag og á morgun.
Fyrir hönd PGA á Íslandi langar mig að óska öllum nýju golfkennurunum til hamingju með gráðuna og býð þau um leið velkomin í félagið sem fullgildir PGA golfkennarar.
Björn Kristinn Björnsson, formaður PGA á Íslandi.