Útskriftarferð PGA golfkennaraskólans vel heppnuð í alla staði

Dagana 14 – 22 maí fór fram útskriftarferð golfkennaraskóla PGA á Íslandi í samstarfi við Golfsögu ferðaskrifstofu. 41 golfkennaranemi fékk það sem lokaverkefni að skipuleggja og framkvæma golfskóla fyrir 160 Íslendinga á Novo Sancti Petri golfsvæðinu nálægt Cádiz á Spáni. Skemst er frá því að segja að uppselt var í ferðina og komust færri að en vildu.

Skipulag ferðar af þessari stærðargráðu krefst mikillar vinnu  og er óhætt að segja að allir, þ.m.t starfsfólk Golfsögu og skólastjórn golfkennaraskólans ásamt nemendum skólans, hafi staðið sig afskaplega vel við skipulag og framkvæmd ferðarinnar.

Sérstaklega verður að minnast á þátt Valdísar Þóru í skipulagsvinnunni en hún stýrði hópnum af mikilli festu og hélt öllum á tánum. Hún á mikið hrós skilið fyrir hennar vinnu við skipulag og framkvæmd þessarar ferðar.

160 farþegar ferðarinnar æfðu og spiluðu golf við bestu aðstæður í 6 daga undir handleiðslu  41 golfkennaranema. Mikil áhersla var lögð á stutta spilið ásamt því að boðið var uppá einkakennslu.

Það er óhætt að segja að þessi ferð hafi í raun verið einstakt afrek í sögu   PGA á Íslandi enda verður þetta ekki leikið eftir aftur.

Á meðan á þessu stóð þá þreyttu golfkennaranemarnir krefjandi lokapróf í einkakennslu sem þau stóðust á endanum en þó nokkrir kennaranemar þurftu að endurtaka prófið og náðu í seinni tilrauninni. 6 prófdómarar fylgdust með lokaprófunum sem stóðu yfir í sex daga og er óhætt að segja að þeir hafi staðið sig hreint út sagt frábærlega.

Prófdómarar voru, Arnar Már Ólafsson skólastjóri PGA golfkennaraskólans, Andrea Ásgrímsdóttir, Ástrós Arnarsdóttir, Heiðar Davíð Bragason, Karl Ómar Karlsson og Sigurpáll Geir Sveinsson. Björn Kristinn Björnsson formaður PGA á Íslandi fylgdist með og var prófdómurum til halds og trausts.

Fyrir hönd PGA á Íslandi þá langar mig að þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd ferðarinnar, þá sérstaklega Golfsögu, skólastjórn PGA skólans, Valdísi og golfkennaranemunum. Einnig langar mig að þakka starfsfólki Novo Sancti Petri golfsvæðisins og hótelsins.

Hér má svo sjá stórskemmtilegt að vídeó frá ferðinni https://youtu.be/Ro7aiyWtUWo?si=Bh1x_S0yeAnrXA10

Tögg :

Deila frétt :

Nýlegar fréttir

Let's Join Wih Us

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis pulvinar dapibus.