PGA á Íslandi setur upp golfskóla á Spáni

PGA setur upp golfskóla á Spáni, mars 2012

-Stórkostlegt tækifæri fyrir hinn almenna kylfing að eyða sex dögum með mörgum af okkar bestu kylfingum-

Golfskólinn er hugsaður bæði fyrir nýbyrjendur sem og þá sem lengra eru komnir. Það verða 4 kylfingar um hvern kennara þannig að gæðin á skólanum eru einstök.

Golfskólinn verður á Costa Ballena og er æfingasvæðið eitt hið besta í Evrópu. Prógrammið er stíft fyrir þá sem hafa metnað fyrir því að ná sem mestri kennslu og spili út úr ferðinni en sveigjanleikinn er jafnframt fyrir hendi fyrir þá sem vilja njóta ferðarinnar og því er skólinn mjög hentugur fyrir hjón.

Völlurinn er 27 holur og punkturinn yfir i-ið er frábær par þrjú völlur sem hentar vel fyrir byrjendur sem og þá sem vilja leggja áherslu á stutta spilið.

Allar nánari upplýsingar er að finna hér ->  Golfskóli útskriftarnema PGA Costa Ballena mars 2012

 

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Tilkynning vegna golfskóla útskriftarnema PGA

Þar sem þátttaka var ekki næg í golfskóla PGA núna í haust var ákveðið að fresta honum þangað til í mars á næsta ári. Þeir sem þegar hafa greitt  staðfestingargjöld fá þau endurgreidd frá Heimsferðum.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Golfskóla PGA útskriftarnema 3. árgangs á Spáni lokið

Eitt af útskriftarverkefnum golfkennaranema í Golfskóla PGA á Íslandi er að skipuleggja og framkvæma golfskóla á Spáni fyrir almenna kylfinga. Þetta var í þriðja sinn sem nemendur Golfkennaraskólans tóku að sér þetta verkefni, en í þessum árgangi voru eftirtaldir nemendur: Árni Páll Hansson (GR), Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), Björn Kristinn Björnsson (GK), Cedric Hannedouche (Frakkland), Erla Þorsteinsdóttir (GS), Heiðar Davíð Bragason (GHD), Hlynur Geir Hjartason (GOS), Ingibergur Jóhannsson (NK), Nökkvi Gunnarsson (NK), og Rögnvaldur Magnússon (GBO). Fyrir hönd PGA skólans sem prófdómararar og eftirlitsaðilar voru Magnús Birgisson, Derrick Moore og Úlfar Jónsson.

Auk golfskólans þurftu útskriftarnemar að standast verklegt einkakennslupróf og verja lokaverkefni sín. Námið hefur staðið yfir í 3 ár og var skiljanlega mikil eftirvænting að nú væri þessum áfanga að ljúka.

Alls skráðu 58 kylfingar sig í golfskólann, öllu fleiri en gert var ráð fyrir í upphafi, en mikil eftirspurn var eftir að komast að. Þetta kallaði á nokkra endurskipulagningu frá upphaflegri áætlun og var því hópnum skipt í 6 hluta, þar sem 3 æfðu fyrir hádegi og léku síðan golfhring eftir hádegi, og öfugt. Gekk þetta skipulag mjög vel upp, en gerði það þó að verkum að þeir sem æfðu eftir hádegi voru e.t.v. orðnir orkuminni en þeir sem æfðu fyrir hádegi, enda búin að leika 18 holur um morguninn. Fólk var þó í lang flestum tilvikum mjög ánægt með fyrirkomulag skólans og viðmót og ráðgjöf kennaranemanna. Áhersla var lögð á að þátttakendur fengu sem oftast tækifæri til að leika með kennaranemunum úti á velli og var fólkið mjög ánægt með þá tilhögun að fá ráðgjöf í leikskipulagi og þeim þáttum sem hafa þarf í huga úti á velli.

Golfskólinn fór fram á Costa Ballena sem er að aðal aðsetur golfdeildar Heimsferða, en þar eru aðstæður afar góðar til leiks og æfinga.

Í grófum dráttum var dagskrá skólans og ferðarinnar eftirfarandi:

24. mars

  • Koma til Costa Ballena á Hotel Elba um miðjan dag
  • Frjálst golf fyrir þá sem vildu
  • Upplýsingafundur um kvöldið og afhending golfbols sem allir þátttakendur fengu

25. mars 1. dagur Golfskóla PGA útskriftarnema

  • Stöðvaþjálfun í umsjón PGA útskriftarnema (sveifla, pitch, pútt)
  • Áhersla á tæknileg grunnatriði (2,5 – 3 klst)
  • 18 holur þar sem útskriftarnemar léku nokkrar holur með flestum hollum

26. mars 2. dagur Golfskóla PGA útskriftarnema

  • Stöðvaþjálfun í umsjón PGA útskriftarnema. Áhersla á að fylgja eftir þeim atriðum sem lagt var með af stað deginum áður (2,5 – 3 klst).
  • 18 holur þar sem útskriftarnemar léku nokkrar holur með flestum hollum

27. mars 3. dagur Golfskóla PGA útskriftarnema

  • Stöðvaþjálfun í umsjón PGA útskriftarnema. Sveifla, vipp og pútt (2,5 – 3 klst).
  • 18 holur þar sem útskriftarnemar léku nokkrar holur með flestum hollum

28. mars, 4. dagur Golfskóla PGA útskriftarnema

  • Stöðvaþjálfun í umsjón PGA útskriftarnema með áherslu á keppnislíka þjálfun.
  • Talning í að hitta brautir, vippa og pútta út, pútthringur á æfingaflöt uppá skor.
  • 18 holur þar sem útskriftarnemar léku nokkrar holur með flestum hollum

29. mars, 5. dagur Golfskóla PGA útskriftarnema

  • Einkakennsla frá kl. 9-12:30. Allir þátttakendur fengu 25 mínútna einkakennslu þar sem dregið var um hvaða kennara þau fengu.
  • 18 holur eftir hádegi.

30. mars, 6. dagur Golfskóla PGA útskriftarnema

  • Lokamót golfskólans. Texas scramble (4 manna)
  • Lokahóf um kvöldið. Verðlaunaafhending og afhending viðurkenningaskjala fyrir þátttakendur.

31. mars

  • Frjálst golf
  • Brottför til Íslands seint um kvöldið

Dagskráin heppnaðist mjög vel og var skipulag og framkvæmd mjög góð. Fyrsti dagurinn var býsna brattur og var ákveðið að breyta örlítið um áherslur, sem gekk mjög vel upp. Því er óhætt að segja að skólinn hafi verið mjög lifandi þar sem lesið var í viðtökur þátttakendanna og skólinn mótaðist því nokkuð af hópasamsetningunni. Fólk lét í ljós mikla ánægju með skólann og var sérlega ánægt með þá miklu spilakennslu sem það fékk. Þrátt fyrir stóran hóp þá náðist einstaklega góð stemmning og fólk blandaðist mjög vel, enda allir með sömu markmið, að bæta sig og skemmta sér í golfi í góðum félagsskap.

Að mati kennara skólans þá er aðdáunarvert hversu vel þessi árgangur hefur leyst viðamikil verkefni líkt og þetta, sem og Pæjugolfs-verkefnið sem fór fram sumarið 2011. Í hópnum eru ólíkir en öflugir einstaklingar, sem vinna vel saman og leysa vel þau verkefni sem fyrir þau eru lögð.

PGA á Íslandi vill koma á framfæri kæru þakklæti til allra þátttakenda í ferðinni og skólanum, fyrir skemmtilega samveru og jákvætt viðmót allan tímann.

Myndir úr ferðinni er að finn hér

Fyrir hönd PGA á Íslandi

Úlfar Jónsson

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Myndir frá golfskóla PGA á Spáni

Útskriftarnemar PGA á Íslandi stóðu fyrir glæsilegum golfskóla á Costa Ballena 24. til 31. mars.

Myndi segja meira en þúsund orð, hægt er að skoða myndir frá golfskólanum hér.
Skýrslu um ferðina skrifaða af Úlfari Jónssyni má lesa hér

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Golfklúbbur Sauðárkróks auglýsir eftir golfkennara til starfa sumarið 2012

Golfklúbbur Sauðárkróks auglýsir eftir golfkennara til starfa sumarið 2012.
Golfklúbbur Sauðárkróks hefur lengi haldið úti öflugu barna-og unglingastarfi og s.l. sumar sendi klúbburinn m.a. sveitir bæði í stráka- og stúlknaflokki í sveitakeppnir GSÍ.

Tímabilið sem um ræðir er júní til ágúst.

Um er að ræða umsjón með unglingastarfi klúbbsins en einnig eru miklir möguleikar með kennslu fyrir eldri kylfinga klúbbsins.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Auglýst eftir golfkennara á landsbyggðina

Golfklúbburinn Ós, Blönduósi og Golfklúbbur Skagastrandar auglýsa eftir golfkennara sumarið 2012.

Mikill áhugi er hjá þessum klúbbum að efla barna-og unglingastarf  og fá fleiri „fullorðna“ til að stunda golfíþróttina á svæðinu. Kennslan færi  fram á báðum stöðum. Við leitum að kennara í fullt starf eða hlutastarf, vinna í boði ef áhugi er fyrir hendi.

Blönduós stendur við þjóðveginn og er um það bil 15 mínútna akstur frá Blönduósi til Skagastrandar. Vatnahverfisvöllur er á Blönduósi og Háagerðisvöllur á Skagaströnd. Báðir vellirnir eru 9 holu vellir í fallegu umhverfi  fjarri ys og þys. Í þessum tveimur klúbbum eru um það bil 80 félagar.

Tilvalið starf fyrir áhugasaman og metnaðarfullan  kennara sem vill taka þátt í uppbyggingu á landsbyggðinni  sem skilar af sér upprennandi golfsnillingum.

Frekari upplýsingar gefa:

Jóhanna G. Jónasdóttir, formaður GÓS.  Sími 864 4846. Netfang: jgjon@mi.is
Ingibergur  Guðmundsson,  formaður GSK.  Sími: 892 3080. Netfang: ig@simnet.is

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Stjórn PGA skiptir með sér verkum

Stjórn PGA hélt sinn fyrsta fund 3. febrúar. Fyrsta verk stjórnarinnar var að skipta með sér verkum og var Sigurpáll Geir Sveinsson endurkjörinn formaður þriðja árið í röð. Að öðru leiti er skipting stjórnar með eftirfarandi hætti: Jón Þorsteinn Hjartason, ritari. Ingi Rúnar Gíslason, mótamál og afreksnefnd GSÍ. Brynjar Eldon, menntamál. Einar Lyng, gjaldkeri og fjáröflun.

Þá var ákveðið að leggja áherslu á að endurtaka Pæjugolfið sem var eitt af útskriftarverkefnum nema í golfkennaraskólanum á síðasta ári. Þetta verkefni er sniðið að því markmiði að auka vægi golfíþróttarinnar sem fjölskylduíþróttar og verður því mikill metnaður lagður í þetta verkefni.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Punktar af aðalfundi

Aðalfundur PGA á Íslandi var haldinn 28 febrúar síðastliðinn. Mikil gróska er í samtökunum sem telur nú 55 PGA sérfræðinga, 36 eru viðurkenndir PGA kennarar, sjö eru með stöðuna spilandi atvinnumaður og 12 eru PGA kennaranemar.

Stjórn PGA var endurkjörinn með þeirri breytingu þó að úr stjórn fór Jóhann Hjaltason og í hans stað kom Brynjar Eldon. Stjórn PGA á Íslandi er því þannig skipuð: Sigurpáll Geir Sveinsson, Ingi Rúnar Gíslason, Einar Lyng, Jón Þorsteinn Hjartarson og Brynjar Eldon.
Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf fengu kylfingur ársins 2011 og kennari ársins 2011 viðurkenningar.

PGA kylfingur ársins var valinn Birgir Leifur Hafþórsson en hann hlaut nafnbótina jafnframt á síðasta ári. Birgir Leifur er vel að nafnbótinni kominn en hann er í dag okkar fremsti kylfingur, reyndi hann meðal annars fyrir sér í fyrsta sinn á bandarísku PGA mótaröðina og komst upp á annað stig. Hann reyndi jafnframt að endurnýja þátttökurétt sinn á Evrópsku mótaröðina sem hann missti eftir bakmeiðsli og komst sömuleiðis á annað stig úrtökumótsins. Birgir Leifur mun taka þátt í Evrópsku Áskorendamótaröðinni í ár og verður spennandi að fylgjast með honum spreyta sig á henni.

 

Derrick hlýtur nafnbótina PGA kennari ársins 2011

Derrick Moore var útnefndur Kennari ársins, fyrir framúrskarandi störf við afreksþjálfun kylfinga úr GKG, landsliðsins og störf við PGA Golfkennara-skólann. Derrick hefur komið nálægt mörgum kylfingnum í störfum sínum við barna og unglingastarf og hefur fjöldinn allur af okkar bestu og efnilegustu kylfingum notið leiðsagnar Derricks einhverntíman á keppnisferlinum.

 

Hefð er fyrir því að halda árlegt pútt mót atvinnumanna samhliða aðalfundinum. Baráttan var hörð í ár og var úrslitaviðureignin á milli þeirra Einars Lyng og Magnúsar Birgissonar. Einar átti titil að verja frá því árinu á undan en varð á endanum að játa sig sigraðan. Það varð því Magnús Birgisson sem var krýndur PGA Pútt meistarinn 2011 og hlotnast þann heiður að klæðast hinni eftirsóttu grænu lopapeysu þetta árið.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Aðalfundur PGA fyrir starfsárið 2011

Aðalfundur PGA verður haldinn laugardainn 21. janúar í Hraunkoti.

Mæting er kl. 11.00. , þá mun Agnar Már að halda fyrirlestur um það sem helst brann á mönnum á aðalfundi PGA‘s of Europe .

Eftir kynninguna verður léttur hádegisverður í boði PGA.

Kl. 13.00 ætlum við að skipta félögum uppí 3 vinnuhópa og fá umræður og hugmyndir varðandi eftirfarandi þrjú atriði.

1. Pæjugolf PGA 2012.                  2. Tekjumöguleikar PGA                 3. Mótamál PGA

Þegar þessari vinnu lýkur höldum við  Púttmót PGA 2012. Einar Lyng hefur titil (lopapeysu) að verja og ætlar hann ekki að láta titilinn af hendi svo auðveldlega.

Aðalfundurinn verður svo settur kl. 16.00, samkvæmt lögboðinni dagskrá og ætti að ljúka um kl. 17.00

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Laust starf hjá ProGolf

ProGolf auglýsir eftir PGA menntuðum kennara til að sinna barna og unglingastarfi GR. Sjá nánar hér -> Laust starf til umsóknar

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3

Landslið atvinnumanna tekur þátt í Evrópukeppni PGA

 

Landslið Íslands skipað atvinnumönnum í golfi hefur leik í dag í Evrópukeppni landsliða sem haldin er í Portúgal. Keppnin fer fram á Vale do Lobo golfvellinum, hún er haldin af PGA‘s of Europe og eru aðalstyrktaraðilarnir Ryder Cup og Glenmuir. Spilaðir eru fjórir hringir og eru 23 landsliðsem taka þátt.

Úlfar, Sigupáll og Ólafur

Íslenska landsliðið er skipað þeim Úlfari Jónssyni sem er liðsstjóri ásamt þeim Sigurpáli Geir Sveinssyni og Ólafi H. Jóhannessyni. Landsliðið spilaði æfingahring í dag og að sögn Úlfars, þá er völlurinn mjög krefjandi, miklar rigningar undanfarna daga gera hann þungan þar sem boltinn stöðvast nánast þar sem hann lendir. Þar sem völlurinn er töluvert langur þá þýðir ekkert annað en að vera vel á boltanum. Flatirnar taka vel við þannig tilfinningin er engu að síður góð eftir æfingahringinn, öll umgjörð er til fyrirmyndar og það ríkir eftirvænting í liðinu að hefja leik.

Þeir Úlfar, Sigurpáll og Ólafur unnu sér þátttöku rétt með því að vera þremur efstu sætunum á PGA meistaramóti Íslands sem haldið var síðasta sumar.

Posted in Uncategorized | Athugasemdir3